Með Odoo ertu með einn hugbúnað þar sem hægt er að velja úr ótal öppum fyrir reksturinn. Öppin eru sjálfkrafa samtengd og tala því saman og mynda eina sterka heild. Upplýsingar flæða því auðveldlega milli hvers hluta starfseminnar og eru auðveldlega aðgengilegar til að greina lykilniðurstöður.
Þú velur þau öpp sem henta fyrir hvern hluta starfseminnar og þú getur bætt við eftir þörfum.
Bókhald, innkaup, birgðir, laun, sala, viðskiptatengsl, markaðssetning, vefsíða og margt, margt fleira.
Ef þú ert með ýmsar tegundir af hugbúnaði sem gegnir mismunandi hlutverki í rekstrinum þá eru miklar líkur á því að allur þessi hugbúnaður sé ekki samtengdur. Einnig er líklegt að mikil vinna og kostnaður fylgi því að samtengja hugbúnaðinn svo upplýsingar geti flætt á milli.
Öppin í Odoo eru samþáttuð frá grunni og eru því hagkvæmari leið við en að vera með hugbúnað frá mismunandi framleiðendum. Ferlar verða sjálfvirkari um leið og yfirsýnin yfir mikilvæga hluti rekstrarins verður betri frá byrjun. Upplýsingar flæða óhindrað á milli rekstrareininga.
Odoo er með svokallað „open-source development model“ og því er opin aðgangur fyrir þúsundir forritara og sérfræðinga til að hanna viðskiptaöpp með mismunandi þarfir fyrirtækja í huga. Notendur Odoo hafa því aðgang að gríðarlega miklum fjölda viðskipta appa sem eru fullkomlega samþáttuð sín á milli.
Odoo gefur út uppfærslu árlega og breytingar á notendaviðmóti ná alltaf yfir öll öpp. Odoo er því í stöðugri þróun.